Fréttir | 09. mars 2018 - kl. 17:28
Æskulýðsmót Neista
Frá æskulýðsnefnd Neista

Sunnudaginn 18. mars klukkan 14:00 verður haldið Æskulýðsmót í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Keppt verður í pollaflokki, barnaflokki og unglingaflokki. Veglegt kaffihlaðborð í boði foreldra Neistakrakka verður annað hvort í lok móts eða í hléi. Allir velkomnir til að fylgjast með Neistakrökkunum okkar og samgleðjast á góðum degi. Skráningar berist á netfangið amj@bondi.is fyrir klukkan 12:00 miðvikudaginn 14. mars. Ekkert skráningargjald.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum og greinum:

Pollaflokkur

- Frjáls ferð á brokki eða tölti (teymt undir)

- Smali (teymt undir)

Barnaflokkur

- T7

- Þrígangur (tölt/brokk, fet og stökk)

- Smali

Unglingaflokkur

- T7

- Fjórgangur

- Smali

Þrígangur í Barnaflokki: Riðnir skulu tveir og hálfur hringur og sýnt fet (hálfur hringur), tölt eða brokk (heill hringur) og stökk (heill hringur). Áður en keppandi hefur keppni má hann ríða hálfan hring þ.e. hefja keppni að sunnanverðu. Keppandi ræður röð gangtegunda en í lok keppni skal hægja niður á fet.

Fjórgangur í unglingaflokki: Einn keppir í einu. Sýna má greinina upp á hvora hönd sem er. Knapar hafa fjóra og hálfan hring til umráða til að sýna eftirfarandi gangtegundir í þeirri röð sem þeir sjálfir kjósa. Hægt tölt, hægt til milliferðar brokk, fegurðartölt, meðal fet, hægt til milliferðar stökk. Einungis má sýna hverja gangtegund einu sinni, fet skal sýna hálfan hring og aðrar gangtegundir heilan hring. Áður en keppandi hefur keppni má hann ríða hálfan hring þ.e. hefja keppni að sunnanverðu.

Í T7 er riðinn einn hringur á hægu tölti, hægt niður á fet og snúið við, síðan riðinn einn hringur á frjálsri ferð.

Skráningar berist á netfangið amj@bondi.is fyrir klukkan 12:00 miðvikudaginn 14. mars. Fram komi nafn knapa, nafn á hrossi, aldur og litur. Ekkert skráningargjald.

Veglegt kaffihlaðborð í boði foreldra Neistakrakka verður annað hvort í lok móts eða í hléi. Allir velkomnir til að fylgjast með Neistakrökkunum okkar og samgleðjast á góðum degi.

Æskulýðsnefnd Neista

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga