Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:22 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:22 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:22 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:22 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:22 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:22 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Fimmtudagsfundir í Húnabúð munu standa fram að dymbilviku. Vegna veikinda skaust Menning í Miðfirði inn í fundaröðina síðastliðinn fimmtudag en Ólafur Jóhannsson fv. skólastjóri kom til liðs með örskömmum fyrirvara og flutti fundargestum skemmtilegt erindi um Miðfjörð allt frá dögum Þórðar hreðu og Grettis sterka til fjárskiptanna 1947.
Fundurinn með Jóni Torfasyni frestast fram til 22. mars en hann mun segja frá kirkjum austan Gljúfurár og líkan Auðkúlukirkju verður til sýnis á fundinum. Sá verður síðasti fundur fyrir páska.
Á næsta fundi, fimmtudaginn 15. mars, mun Tómas Gunnar Sæmundsson beina kastljósinu að sveitunga sínum, Erlendi Jónssyni bókmenntafræðingi og rithöfundi og lesin verða nokkur ljóða hans.
Ljósmyndarinn og Blönduósingurinn, Skarphéðinn Ragnarsson mun á sama fundi sýna myndir úr héraði en hann hefur um áratugaskeið sinnt þessu merka hugðarefni sínu og hefur ársritið Húnavaka notið góðs af myndum hans.
Kaffisopi, kleinur og kanelsnúðar verða á borðum. Aðgangseyrir 1000 krónur.
Að fundunum í Húnabúð Skeifunni 11 standa Húnvetningafélagið, Sögufélagið Húnvetningur og U3A.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |