Kvennaskólinn á Blönduósi
Kvennaskólinn á Blönduósi
Fréttir | 19. mars 2018 - kl. 15:06
Mikill áhugi á textílkennslu í Kvennaskólanum

Á vef Þekkingarsetursins segir frá því að mikil eftirspurn sé eftir kennslu og vinnuaðstöðu fyrir nemendur á sviði textíls í Kvennaskólanum. Uppbygging náms á sviði textíl, fræðslumiðlun og efling samstarfs við innlenda og erlenda skóla hefur verið eitt af áhersluverkefnum Þekkingarsetursins og Textílsetursins síðan 2013.

Undanfarin ár hafa nemendur Listaháskóla Íslands komið í starfsnám og dvalið í Kvennaskólanum með kennurum sínum. Hafa þeir fengið kennslu í prjóni, spuna og vefnaði frá textílsérfræðingum í Kvennaskólanum, Ragnheiðar Björk Þórsdóttur og Jóhönnu E. Pálmadóttur. Einnig hafa nemendur frá Håndarbejdes Fremmes UCC í Kaupmannahöfn dvalið á Blönduósi á hverju ári. Þar að auki hefur Jóhanna verið gestakennari í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi og í grunnskólum á svæðinu. 

Nú eru erlendir skólar að bætast í hópinn en væntanleg er hópur frá ýmsum hönnunarskólum viða úr Evrópu, þ.a.m. Central Saint Martins í London, á vegum Listaháskóla Íslands. Nemendur ætla að vinna úr fiskiskinni frá Gestastofu Sútarans undir leiðsögn sérfræðinga á þessu sviði og nýta sér aðstöðu Kvennaskólans.

Í júní munu nemendur frá Concordia háskóla í Montreal Kanada dvelja í listamiðstöðinni í ,,short term summer program" og fá kennslu frá Jóhönnu og Ragnheiði á þeirra sérsviðum. Nú þegar hafa borist fyrirspurnir frá nýjum skólum erlendis frá og er ánægjulegt að sjá hvernig samstarf við skóla er að þróast, að því er segir á vef Þekkingarsetursins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga