Fréttir | 21. mars 2018 - kl. 09:32
SAH - Mótaröðin - Töltmót
Tilkynning frá mótanefnd Neista

Töltmót verður haldið föstudaginn 23. mars kl. 19:00 í Reiðhöllinni. Keppt verður í barnaflokki 13 ára og yngri, unglingaflokki 14 til 17 ára, áhugamannaflokki og opnum flokki.

Fyrirkomulag: Einn hringur hægt tölt svo snúið við, einn hringur tölt með hraðamun og einn hringur fegurðartölt.

Skráningu skal lokið fyrir kl.  13:00 fimmtudaginn 22. mars á   heneisti@gmail.com og greiðslu skráningargjalda má endilega verið lokið áður en keppni hefst inn á reikning félagsins: 0307-26-055624 kt. 480269- 7139.

Fram þarf að koma: knapi, hestur, hvaða hönd og flokkur. Gjald kr. 2.000 í fullorðins og 1.500 unglinga.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga