Pistlar | 25. mars 2018 - kl. 14:59
Stökuspjall: Ástin geymist falin
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Höfðabrekkur heita handan ár en Hreppar kallast vegmegin í skarðinu því sem liggur ofan úr Skörðum, frá Þverárdal og niður að Húnaveri/Bólstaðarhlíð. Hlíðará kemur ofan úr Skörðunum þar sem kot frá Hlíð voru setin fram á fyrri hluta síðustu aldar. Selhagi og Kálfárdalur eru nafnkenndir bæir á Skörðum, Sigurður vísnasafnari kenndi sig við Selhaga en í Kálfárdal bjó Bjarni með Ríkeyju konu sinni og börnum þeirra en síðan á Brún og Bollastöðum. Á Bollastöðum hafa síðan búið Ingólfur Bjarnason, Bjarni Ingólfsson og þar býr nú með föður sínum Ragnar Ingi Bjarnason. Eldri Bjarni gerði góðar vísur:

Uppfylling ef undan bar
óska og vona minna
var þá gott að vita hvar
vini mátti finna.

Sigurður frá Selhaga flutti til Akureyri ungur maður, fór að stunda vísnasöfnun -- og smíðaði fleiri, skoðum þessa lipru hringhendu:

Aga ströngum una verð
eftir föngum glaður
er þó löngum einn á ferð
útigöngumaður.

Hér birtir Sigurður einlæga spekivísu:

Gott er að fara vel með vín
og verða aldrei hálfur
en ævikjör og örlög sín
enginn mótar sjálfur.

Illa fer ég ei með vín
oft þó verði hálfur
samt er önnur ævin mín
en ég vildi sjálfur.

Hestavísur orti Sigurður:

Augun snör sem eldingin
af æskufjöri loga.
Hröð er för þín fákur minn
sem fljúgi ör af boga.

Þrönga dali Skarðanna, mærir Sigurður og svarar Ingibjörgu frá Valadal sem orti á lítilækkandi nótum og sagði: Aumt er að ríða upp á Skörð. Sigurður segir aftur:

Í fögrum hlíðum frjáls er hjörð
fjalls við þýða blæinn.
Yndi´ er að ríða upp á Skörð
á vor-blíðan daginn. 

Hljómfagra hringhendu yrkir Sigurður um átthagatryggðina:

Enginn gleymir æskurann
ástin geymist falin.
Oft því dreymir útlagann
aftur heim í dalinn.

Vísað er til:
Vísna Sigurðar frá Selhaga: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?ID=18178
Kveð ég dalinn kæra minn: http://stikill.123.is/blog/2017/02/24/761266/
Í fögrum hlíðum frjáls er hjörð: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=28729
Frá Hlíðarsókn 1905: http://stikill.123.is/blog/2017/06/09/766059/

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga