Húnakórinn að syngja í Húnabúð
Húnakórinn að syngja í Húnabúð
Pistlar | 12. apríl 2018 - kl. 09:03
Vorferð Húnakórsins
Frá Húnakórnum

Húnakórinn fer í sína árlegu vor- og skemmtiferð laugardaginn 21. apríl nk. og að þessu sinni liggur leiðin í heimahagana. Við ætlum að nota tækifærið og taka lagið í Blönduóskirkju klukkan 14:00 þennan dag og syngja þá söngskrá sem við höfum verið að æfa í vetur eða hluta af henni. Sungið verður í 45-50 mínútur og fer það eftir stemningunni hversu lengi við syngjum.

Blönduósingar og nærsveitamenn eru velkomnir að koma og hlusta og njóta og svo vonandi blanda geð, sem alltaf er hollt og gott.

Húnakórinn var stofnaður 17. desember 1993 og verður því 25 ára í desember á þessu ári. Kórinn samanstendur af brottfluttum Húnvetningum og reyndar mörgu fleira góðu fólki, því allt gott fólk er í eðli sínu Húnvetningar!

Dagskráin er blanda af allskonar; létt og þyngra, heimafengið og aðfengið. Með okkur syngur húnvetnska söngkonan Birna Ragnarsdóttir, en hún hefur annast raddþjálfun og fleira. Á harmonikku leikur Húnvetningurinn Ragnar Leví.

Stjórnandi Húnakórsins er Eiríkur Grímsson frá Ljótshólum í Svínadal.

Sem sagt; allir velkomnir og ekki spillir að það kostar ekki krónu að hlusta á okkur!

Klukkan 17:30 verður kórinn svo í Hvammstangakirkju og þar gildir auðvitað allt sem áður er sagt, nema nú er talað til Hvammstangabúa og nærsveitamanna.

Um kvöldið snæðir kórinn svo kvöldverð í Sjávarborg, áður en haldið er heimleiðis.

Kórinn hlakkar mikið til þessarar vorferðar og vonast til að hitta sem flesta hressa og glaðbeitt sveitunga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga