Ný stjórn Björgunarfélagsins Blöndu. Aftari röð f.v.: Svanur, Þorgils, Auðunn og lafur. Fremri röð f.v.: Elmar, Hjálmar og Agnar.
Fréttir | 13. apríl 2018 - kl. 09:08
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu var haldin í vikunni og var ágætis mæting á fundinn samkvæmt því er fram kemur á Facebook síðu félagsins. Fáar breytingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni en Arnar Freyr Ómarsson hætti sem varaformaður í stjórn og var honum þakkað fyrir vel unnin störf fyrir félagið. Svanur Ingi Björnsson kom inn sem varamaður í staðinn fyrir Arnar.
Stjórn Björgunarfélagsins Blöndu skipa þeir Hjálmar Björn Guðmundsson formaður, Ólafur Sigfús Benediktsson varaformaður, Agnar Logi Eiríksson gjaldkeri, Auðunn Steinn Sigurðsson ritari og Þorgils Magnússon meðstjórnandi. Varamenn eru Elmar Sveinsson og Svanur Ingi Björnsson.