Mynd: Lóuþrælar
Mynd: Lóuþrælar
Fréttir | 13. apríl 2018 - kl. 09:16
Lóuþrælar syngja í Blönduóskirkju

Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra syngja í Blönduóskirkju, þriðjudaginn 17. apríl klukkan 21:00. Söngstjóri er Ólafur Rúnarsson, Elinborg Sigurgeirsdóttir sér um undirleik og einsöngvarar eru Friðrik M. Sigurðsson, Guðmundur Þorbergsson og Skúli Einarsson. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Upplagt að mæta á tónleika Lóuþræla og eiga með þeim ánægjulega stund.

Aðgangseyrir kr. 3.000,- (enginn posi), frítt fyrir 14 ára og yngri.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga