Fréttir | 13. apríl 2018 - kl. 16:32
Sumarskemmtun Blönduskóla
Sumardaginn fyrsta þann 19. apríl

Hin árlega sumarskemmtun Blönduskóla verður haldin fimmtudaginn 19. apríl, sumardaginn fyrsta í Félagsheimilinu á Blönduósi. Nemendur í 1. – 7. bekk sjá um öll skemmtiatriði undir leiðsögn kennara.

Skemmtunin hefst kl. 14:00 og aðgöngumiðinn kostar kr. 1.000. Ókeypis er fyrir börn fædd 2005 (7. bekk ) og yngri.

Gestir geta verslað í sjoppunni sem er í umsjón 10. bekkjar Blönduskóla.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga