Frá Húnavöku
Frá Húnavöku
Tilkynningar | 23. apríl 2018 - kl. 11:08
Húnavaka verður dagana 20. - 22. júlí á Blönduósi
Tilkynning frá umsjónaraðila Húnavöku 2018

Bæjarhátíðin Húnavaka verður haldin dagana 20. - 22. júlí n.k. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði líkt og undanfarin ár, þó eru alltaf einhverjar breytingar. Ef einhver lumar á hugmynd að viðburði eða viðburðum eða vill koma að hátíðinni á einhvern hátt þá má sá sami hafa samband á hunavaka@blonduos.is fyrir 10. maí næstkomandi.

Hérna gefst heimamönnum tækifæri á að koma sínu á framfæri. Einnig ef þið viljið vera með söluborð með ykkar vörum eða þjónustu þá hafið þið einnig samband.

Við ætlum að halda okkur við rauða þemað líkt og undanfarin ár. Með von um góð viðbrögð.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga