Tilkynningar | 24. apríl 2018 - kl. 08:55
Sumarstarf í Þingeyraklausturskirkju

Sóknarnefnd Þingeyraklausturskirkju óskar eftir að ráða staðarvörð til að sjá um leiðsögn í kirkjunni,  innheimtu þjónustugjalds og önnur tilfallandi verkefni. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og hafa gott vald á að minnsta kosti einu erlendu tungumáli. Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi.

Opnunartími kirkjunnar er frá klukkan 10 til 17, frá og með 1. júní.  

Nánari upplýsingar veitir Björn Magnússon í síma 895 4473.

Umsóknir sendist á netfangið bjorn@holabak.is eða með bréfi til Björns Magnússonar, Hólabaki. 541 Blönduós.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga