Tilkynningar | 25. apríl 2018 - kl. 09:07
Sumarafleysingar – Heimilið Skúlabraut

Heimilið Skúlabraut, Blönduósi óskar eftir sumarafleysingu. Um er að ræða 100% samþætt starf matráðar og á hæfingarstöð. Annars vegar sér starfsmaður um matseld og framreiðslu á mat, frágang og þrif. Hins vegar felst í starfinu að aðstoða fatlað fólk við athafnir daglegs lífs.  Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Reynsla af vinnu í eldhúsi/mötuneyti er æskileg. Allar nánari upplýsingar sem og frekari hæfniskröfur má finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf).

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2018. Sótt er um starfið í íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður í síma 893-6673/452-4960 eða með tölvupósti; arijohann@skagafjordur.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga