Fréttir | 25. apríl 2018 - kl. 09:18
Kjörstjórn tekur á móti framboðslistum 5. maí

Framboðsfrestur til að skila inn framboðslistum vegna komandi sveitarstjórnarkosninga rennur út klukkan 12 á hádegi laugardaginn 5. maí næstkomandi. Kjörstjórn Blönduósbæjar tekur á móti framboðslistum þann dag frá klukkan 10 til 12 á hádegi í fundarsal bæjarstjórnar að Hnjúkabyggð 33. Sveitarstjórnarkosningarnar fara fram laugardaginn 26. maí.

Í kjörstjórn Blönduósbæjar eru Auðunn Sigurðsson, Elín Jónsdóttir og Ragnhildur Ragnarsdóttir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga