Fréttir | 25. apríl 2018 - kl. 09:35
Skagastrandarlistinn kynntur

Framboðslisti Skagastrandarlistans (H-listi) fyrir komandi sveitrastjórnarkosningar var samþykktur á fjölmennum fundi stuðningsmanna sem haldinn var í Bjarmanesi í gær. Halldór G. Ólafsson leiðir listann, Péturína Laufey Jakobsdóttir er í öðru sæti og Róbert Kristjánsson í því þriðja. Adolf H. Berndsen skipar 10. sæti listans.

Val á listann fór þannig fram að boðað var til opins fundar viku fyrr þar sem tekin var ákvörðun um að standa að framboði. Á þeim fundi var kosin þriggja manna uppstillingarnefnd sem lagði tillögu sína fyrir fundinn í gær og var hún samþykkt samhljóða.

Framboðslisti Skagastrandarlistans (H-listi)

1. Halldór G. Ólafsson, framkvæmdastjóri
2. Péturína L. Jakobsdóttir, skrifstofustjóri
3. Róbert Kristjánsson, verslunarstjóri
4. Hrefna D. Þorsteinsdóttir, skrifstofumaður
5. Jón Ólafur Sigurjónsson, skrifstofumaður
6. Hafdís H. Ásgeirsdóttir, hársnyrtir
7. Ástrós Elísdóttir, leikhúsfræðingur
8. Gunnar S. Halldórsson, matreiðslumaður og sjómaður
9. Guðrún Soffía Pétursdóttir, umsjónamaður starfs eldri borgara
10. Adolf H. Berndsen, framkvæmdastjóri

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga