Fréttir | 09. maí 2018 - kl. 08:57
Lífið er núna á Skagaströnd í kvöld

Leiklistardeild Höfðaskóla frumsýnir gamanleikritið Lífið er núna í Fellsborg í kvöld klukkan 20. Önnur sýning verður föstudaginn 11. maí klukkan 20. Þetta er í þriðja sinn sem leiklistardeild Höfðaskóla setur upp leiksýningu að vori og sem fyrr leikstýrir Ástrós Elísdóttir og þýðir verkið, sem heitir á frummálinu You Can't Take It With You og er eftir þá Moss Hart og George S. Kaufman.

Fjölskylda Marteins Kvaran lifir áhyggjulausu lífi í New York á fjórða áratug síðustu aldar en lífsstíllinn stingur í stúf við venjur á þeim tíma. Þegar yngsta dóttirin, Lísa, hefur hug á að trúlofast syni kaupsýslumanns, Tomma Waage, reynir á hvort hinar ólíku fjölskyldur geti samlagast. Auk fjölskyldumeðlima blandast ýmsar persónur í málið og meðal annars koma við sögu sprengjur og flugeldar, drukkin leikkona, slöngur, Skattinnheimta ríkisins, rússneskur ballettkennari, rannsóknarlögreglan, flámæltur gullgrafari og stórhertogaynja.

Miðasala við innganginn. ATH! Enginn posi er á staðnum.

Miðaverð:
Grunnskólanemar, kr. 1.000.
Fullorðnir, kr. 2.000.

Leikarar í sýningunni eru nemendur í 8. - 10. bekk Höfðaskóla.

Leikarar:
Arna Rún Arnarsdóttir
Ástríður Helga Magnúsdóttir
Bylgja Hrund Ágústsdóttir
Dagný Dís Bessadóttir
Dagur Freyr Róbertsson
Embla Sif Ingadóttir
Freydís Ósk Kristjánsdóttir
Freyja Dís Jóhannsdóttir
Haraldur Bjarki Guðjónsson
Hekla Guðrún Þrastardóttir
Ingólfur Eðvald Björnsson
Jóhann Almar Reynisson
Jón Árni Baldvinsson
Kristmundur Elías Baldvinsson
Magnús Sólberg Baldursson
Mikael Garðar Hólmgeirsson
Ólafur Halldórsson
Sindri Freyr Björnsson
Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga