Mynd af Facebook síðu hópsins
Mynd af Facebook síðu hópsins
Fréttir | 09. maí 2018 - kl. 09:04
Fegrum bæinn okkar Skagaströnd

„Fegrum bæinn okkar“, er nýstofnaður hópur á Facebook sem hefur það að markmiði að huga að gróðri og umhverfi á fyrirfram ákveðnum svæðum á Skagaströnd. Þeir sem hafa áhuga á að leggja hönd á plóg eru endilega beðnir um að ganga til liðs við hópinn. Þeir sem ekki eru á Facebook en vilja taka þátt er velkomið að setja sig í samband við forsvarsmenn hópsins.

„Vinnum saman að því að gera Skagaströnd með snyrtilegri stöðum á landinu og breytum hugarfari allra til umhverfisins,“ segir í tilkynningu frá hópnum.

Hægt er að setja sig í samband við Birnu í síma 896-6105, Björk í síma 862-6997 eða Dísu í síma 895-5472.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga