Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 10. maí 2018 - kl. 13:04
Tiltektardagur á Blönduósi í dag

Í dag er tiltektardagur á Blönduósi. Bæjarbúar og eigendur fyrirtækja eru hvattir til að fara yfir sitt nánasta umhverfi og hreinsa til. Af því tilefni mun gámasvæðið vera með opið frá klukkan 13:00 – 17:00.

Að lokinni tiltekt mæta bæjarbúar með góða skapið við Félagsheimilið klukkan 18:00 þar sem sveitarstjórn Blönduósbæjar mun grilla fyrir bæjarbúa.

Íbúar eru hvattir til að taka höndum saman og gerum Blönduósbæ enn fallegri.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga