Blönduskóli
Blönduskóli
Fréttir | 15. maí 2018 - kl. 16:15
Lausar stöður hjá Blönduskóla

Þrjár kennarastöður eru lausar til umsóknar við Blönduskóla frá 1. ágúst næstkomandi. Um er að ræða heimilisfræði á öllum stigum, danska í 7. – 10. bekk, almenn kennsla og umsjón á yngsta og/eða miðstigi. Umsóknarfrestur er til 18. maí næstkomandi og skal umsóknum skilað með ferilskrá á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra, thorhalla@blonduskoli.is. Frekari upplýsingar um störfin eru veittar í síma 452-4147.

Í auglýsingu á vef Blönduósbæjar eru tilgreindar hæfniskröfur en þær eru:

Leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi í grunnskóla með einstaklingsmiðaðar áherslur.
Góð samskiptafærni.
Góð tölvukunnátta.
Góðir skipulagshæfileikar.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og faglegur metnaður.

Í Blönduskóla eru um 130 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólaárið 2017-2018 hófst innleiðing nýrrar læsisstefnu og stærðfræðistefnu auk áframhaldandi vinnu við nýtt námsmat. Skólinn er að festa í sessi náms- og kennsluaðferðir sem tengjast Orð af orði. Á vef skólans www.blonduskoli.is er að finna fréttir úr starfi skólans og ýmsar nauðsynlegar upplýsingar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga