Lára og Hjalti
Lára og Hjalti
Lára og Hjalti
Lára og Hjalti
Fréttir | 17. maí 2018 - kl. 12:11
Tónleikar með Hjalta og Láru á sunnudaginn

Tónlistarparið Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson ásamt hinum góðkunna Valmari Valjaots halda tónleika á Borgin, Restaurant Blönduósi sunnudaginn 20. maí klukkan 21:00. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð undir yfirskriftinni Hamskipti sem þau standa fyrir nú í vor og sumar víða um Norðurland.

Á tónleikunum flytja þau fjölbreytta tónlist, klassík, þungarokk og allt þar á milli. Tónlistin er fléttuð saman með sögum og sálfræðilegum pælingum um samskipti fólks og áhrif tónlistar á lífið, en Hjalti starfar sem sálfræðingur ásamt því að vera tónlistarmaður.

Markmið tónleikanna er að áhorfendur eigi notalega kvöldstund þar sem fjölbreytileg tónlist, persónulegar frásagnir og sálfræðilegar pælingar fara saman.

Miðasala við innganginn.

Miðaver kr. 2.500.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga