Fréttir | 18. maí 2018 - kl. 14:20
Óslistinn býður til grillveislu

Á morgun, laugardag, verður grillveisla á kosningaskrifstofu Óslistans að Þverbraut 1 og hefst hún klukkan 17. Frambjóðendur ætla að bjóða upp á grillað lambakjöt úr heimabyggð, kartöflusalat, hrásalat og úrval af sósum. Íspinnar verða í eftirrétt fyrir börnin. Allir íbúar Blönduósbæjar eru velkomnir og vonast frambjóðendur Óslistans að sjá sem flesta.

Dagskrá kosningaskrifstofu Óslistans má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga