Fréttir | 20. maí 2018 - kl. 19:03
Starfsemin á skotsvæðinu að komast á fullan snúning
Frá Skotfélaginu Markviss

Nú er starfsemin á skotsvæðinu að komast á fullan snúning eftir vetrardvalann. Nýliðaæfingar verða að venju á þriðjudagskvöldum. Þessar æfingar eru ætlaðar fyrir þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í skotíþróttinni. Engin aldurstakmörk eru á þessum æfingum. Kennd eru undirstöðuatriði í skotfimi með haglabyssu.

Bent skal á að unglingar sem verða 15 ára á árinu geta stundað æfingar með leyfi foreldra/forráðamanns. Leiðbeinandi á þessum æfingum er Guðmann Jónasson.

Almenn opnun er á miðvikudagskvöldum.

Bæði nýliðaæfingar og almenn opnun hefjast kl. 19.30 og standa til kl. 21.00.

Komi til þess að fella þurfi niður æfingu eða opnun vegna veðurs eða annarra orsaka verður reynt að koma inn tilkynningu á facebook síðu félagsins þess efnis.

Hafi félagsmenn eða aðrir áhugasamir hug á einkakennslu í skotfimi á öðrum tímum en auglýstir eru, er þeim bent á að hafa samband við annaðhvort Guðmann (gsm. 8478686) eða Brynjar (gsm 8640602).

Verðskrá Markviss má finna bæði á www.markviss.net og einnig á facebook síðu félagsins. Þar má einnig finna lista yfir mót á svæði félagsins í sumar og haust

Af gefnu tilefni skal það tekið fram að æfingar í riffilaðstöðu félagsins eru ekki hafnar en vonir standa til að hægt verði að koma riffilbrautinni í gagnið innan skamms.

Opnunartími riffilbrautar verður auglýstur um leið og aðstaðan er tilbúin til notkunar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga