Fréttir | 22. maí 2018 - kl. 11:40
Það fór varla framhjá nokkrum manni að konunglegt brúðkaup var haldið á Bretlandi á laugardaginn. Á mbl.is er sagt frá sex æskuvinkonum sem allar hafa rætur á Blönduósi en þær hittust uppáklæddar á heimili einnar í Reykjavík og fylgdust með brúðkaupi Harry Bretaprins og Meghan Markle í Wondsor á laugardaginn. Á mbl.is segir að vinakvennahópurinn hafi verið samheldinn um langt skeið og á undanförnum árum hafi þær nýtt konungleg brúðkaup til að gera skemmtilega hluti saman.
Þessa skemmtilegu frétt á mbl.is má lesa hér.