Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:54 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:54 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:54 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:54 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:54 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:54 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fyrstu skóflustungurnar að gagnaveri á Blönduósi voru teknar í morgun við Svínvetningabraut. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttisráðherra og þingmaður Norðvesturkjördæmis, Arnar Þór Sævarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Blönduósi og núverandi aðstoðarmaður Ámundar Einars, Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Borealis Data Center og Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður bæjarráðs Blönduósbæjar, tóku skóflustungurnar í sameiningu við fögnuð viðstaddra.
Um 50-60 manns voru samankominn við Svínvetningabrautina í morgun í ágætu veðri til að fylgjast með fyrstu skóflustungunum að byggingu gagnavers undir starfsemi hýsingarfyrirtækisins Borealis Data Center. Valgarð Hilmarsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar, flutti ávarp áður en fjórmenningarnir tóku fyrstu skóflustungurnar í sameiningu. Að þeim loknum fór Ásmundur Einar í gröfu sem komin var á svæðið og gróf stærri holu og það sama gerði Björn Brynjúlfsson. Síðan hélt hópurinn í Félagsheimilið á Blönduósi þar sem boðið var upp á hressingu.
Húsið sem á að byggja næstu vikurnar verður 640 fermetrar að stærð og kostar 150 milljónir króna fullbúið. BDC North ehf. byggir húsið og mun reka það en félagið er í 40% eigu Ámundakinnar ehf. og 60% eigu Borealis Data Center. Áætlað er að húsið verði risið innan mánaðar og eru áform um að byggja fleiri hús á lóðinni.
Tengdar fréttir:
Skóflustunga að gagnaveri á Blönduósi
Milljónir í húsnæði undir gagnaver
Bitcoin námugröftur á Blönduósi
Sótt um lóð fyrir gagnaver á Blönduósi
Fréttin hefur verið uppfærð
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |