Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:06 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:06 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:06 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:06 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:06 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:06 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Ágætu íbúar Blönduósbæjar.
L- listinn hefur verið við völd í Blönduósbæ sl. 8 ár. Á þessum árum hefur mikið áunnist sem ég hef verið svo lánsamur að fá að taka þátt í.
Ég vil nefna hér nokkur atriði sem L-listinn hefur staðið að á síðasta kjörtímabili.
- Við höfum hugað vel að barnafjölskyldum og ætlum að gera áfram, t.d hafa leikskólagjöld ekki verið hækkuð sl. 4 ár og viljum við halda þeim óbreyttum áfram. Tekin var ákvörðun um að hafa frítt í sund fyrir öll börn í Blönduósbæ og viljum halda því áfram ásamt því að bæta eldri borgurum og öryrkjum í þann hóp.
- Loksins erum við að sjá ávinning af þeirri miklu vinnu sem búið að að leggja í skipulags- og atvinnumál með fyrirhugaðri uppbyggingu gagnavers og fleira á svæðinu. Þessum árangri má þakka góðri vinnu núverandi sveitarstjórnar ásamt starfsfólki sveitarfélagsins.
- Ljósleiðari var lagður í dreifbýli Blönduósbæjar.
- Lagfæringar á Blönduskóla ásamt uppbyggingu á skólalóð, með kastala og ærslabelg sem nýtist börnum í skólanum ásamt ferðamönnum. Þá er fyrirhuguð breyting á skólahúsnæðinu fyrir smíðakennslu.
- Stórátak hefur verið gert í blokkinni að utan og margt fleira af smærri verkefnum.
- Til stendur að fara í miklar malbikunarframkvæmdir í sumar sem gerir bæinn okkar enn snyrtilegri. Þá er einnig byrjað á framkvæmdum við nýja göngubrú útí Hrútey þar sem myndarlegur styrkur fékkst til verkefnisins.
Fólki er aftur farið að fjölga á Bönduósi og er komin aukin þörf fyrir húsnæði. Íbúðaverð hefur hækkað töluvert á síðustu misserum og er nú kominn grundvöllur fyrir því að byggja íbúðahúsnæði. Bæjaryfirvöld geta komið þarna að máli með ýmsu móti svo af verði. L-listinn vill koma enn frekar til móts við húsbyggjendur til þess að byggt verði við þær götur sem eru tilbúnar ásamt því að skipuleggja ný íbúðasvæði.
L-listinn samanstendur af fjölbreyttu og kraftmiklu fólki sem hefur áhuga á að sjá sveitarfélagið vaxa og dafna á komandi árum. Þar fer fremstur í flokki Guðmundur Haukur Jakobsson sem er og verður sterkur leiðtogi sveitarfélagsins. Hann hefur sýnt það í störfum sínum fyrir Blönduósbæ og víðar. Hann víkur sér ekki undan ábyrgð og lætur verkin tala. Það er þannig leiðtogi sem við þurfum á að halda í þeirri uppbyggingu sem framundan er í Blönduósbæ.
Þess vegna hvet ég þig til þess að setja X við L á kjördag.
Zophonías Ari Lárusson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |