Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 19:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 19:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 19:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 19:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 19:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 19:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kosið er til sveitarstjórna á landinu í dag og opna flestir kjörfundir í Húnavatnssýslum klukkan 10:00. Níu listar bjóða fram í Húnavatnssýslunum tveimur og á þeim eru 118 frambjóðendur. Í Skagabyggð eru engir framboðslistar og fer þar fram óbundin kosning eða persónukjör. Á Blönduósi eru tveir listar í framboði, L-listi Listi fólksins og Ó-listi Óslistinn. Á Skagaströnd eru tveir listar í framboði, Ð-listi Við öll og H-listi Skagastrandarlistinn. Í Húnavatnshreppi eru þrjú framboð, A-listi Listi framtíðar í Húnavatnshreppi, E-listi Nýtt af í Húnavatnshreppi og N-listi Nýtt framboð í Húnavatnshreppi.
Í Húnaþingi vestra eru tveir listar í framboði en það eru B-listi Framsóknarflokkurinn og aðrir framfarasinnar í Húnaþingi vestra og N-listi Nýtt afl í Húnaþingi vestra. Bæði framboðin buðu fram í síðustu kosningum. B-listinn teflir fram nýju oddvitaefni, Þorleifi Karli Eggertssyni en Elín R. Líndal leiddi listann síðast og er hún í heiðurssæti núna. N-listinn teflir einnig fram nýjum oddvita, Magnúsi Magnússyni. Unnur Valborg Hilmarsdóttir núverandi oddviti situr í heiðurssætinu.
Á Blönduósi býður L-listinn fram í þriðja sinn og er Guðmundur Haukur Jakobsson formaður byggðaráðs oddviti listans að þessu sinni. Óslistinn er nýr en þar er Anna Margret Sigurðardóttir í oddvita sæti. Báðir listarnir á Skagaströnd buðu fram síðast. Guðmundur Egill Erlendsson er oddviti Ð-listans og Halldór G. Ólafsson tók við oddvitasætinu á H-listanum af Adolf H. Berndsen sem hættir í sveitarstjórn eftir að hafa verið oddviti frá árinu 1994.
Í Húnavatnshreppi býður A-listi fram að nýju með nýjan oddvita, Jón Gíslason. E-listi Nýs afls býður einnig áfram með sama oddvita áfram, Þóru Sverrisdóttir. Þá hefur nýtt framboð litið dagsins ljós, N-listinn en Ragnhildur Haraldsdóttir leiðir listann.
Kjörfundur í Sveitarfélaginu Skagaströnd fer fram í Fellsborg og hefst klukkan 10:00 og lýkur klukkan 21:00. Talning atkvæða verður á sama stað og gæti hafist um kl. 21.30.
Kjörfundur á Blönduósi hefst klukkan 10:00 í Íþróttamiðstöðinni í norðursal og er inngangur á móts við Kjörbúðina. Kjörfundi lýkur klukkan 22:00. Búast má við lokatölum eftir klukkan 23:00.
Í Húnavatnshreppi fer kjörfundur fram í Húnavallaskóla og hefst klukkan 11:00 en stefnt er að því að honum ljúki klukkan 19:00. Reiknað er með að talning atkvæða hefjist klukkan 21:00.
Í Húnaþingi vestra opnaði kjörfundur í Félagsheimilinu á Hvammstanga klukkan 9:00 í morgun og stendur hann til 22:00. Opin talning atkvæða verður í Félagsheimilinu Hvammstanga klukkan 22:30 og eru allir velkomnir.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |