Fréttir | 08. júní 2018 - kl. 20:49
Hekla á hringferð um landið

Bílaumboðið Hekla leggur af stað í hringferð um landið á sunnudaginn. Ferðin stendur yfir í fimm daga og á þeim tíma verða þrettán staðir heimsóttir, þar á meðal Hvammstangi, Blönduós og Skagaströnd. Auk þrautreyndra starfsmanna verður fjölbreytt úrval bíla með í för frá Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Audi. Á staðnum verður mikið um dýrðir Volkswagen e-Golf, Tiguan og T-Roc, Mitsubishi Outlander PHEV og L200, Skoda Kodiaq og Karoq, Audi Q7 og A3.

Ferðin hefst á Norðurlandi og endar á Selfossi. Fyrsti áfangastaður er Hvammstangi og á hverjum stað verður boðið upp á reynsluakstur.

„Þetta verður afar skemmtilegt og við munum fara víða en tveir til þrír staðir verða heimsóttir á dag,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, vörumerkjastjóri Volkswagen. „Það verða 10 bílar í hringferðinni og munum við bjóða fólki upp á reynsluakstur á hverjum stað. Við verðum með myndavélina á lofti og fólk getur fylgst með ferðinni á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #heklusumar. Einnig minnum við á Facebook-síðu HEKLU (https://www.facebook.com/hekla.is)þar sem fréttir af ferðinni munu koma inn reglulega á meðan henni stendur.“

Hekla verður á eftirfarandi stöðum:

Sunnudagurinn 10. júní 2018

Hvammstangi frá kl. 14-15 | Við Félagsheimilið

Blönduós frá kl. 17-18 | N1

Skagaströnd frá kl. 20-21 | Olís

Mánudagurinn 11. júní 2018

Sauðárkrókur frá kl. 10-13 | KS verkstæði

Siglufjörður frá kl. 16-18 | Olís

Dalvík frá kl. 20-21 | N1

Þriðjudagurinn 12. júní 2018

Akureyri kl. 10-13 | Höldur

Húsavík frá kl. 16-17 | N1

Neskaupstaður frá kl. 20-21 | Olís

Miðvikudagurinn 13. júní 2018

Reyðarfjörður frá kl. 11:00-11:30 | Olís

Reyðarfjörður frá kl. 11:30-12:30 | Álverið

Egilsstaðir frá kl. 16 - 18 | Bílaverkstæði Austurlands

Fimmtudagurinn 14. júní 2018

Höfn í Hornafirði frá kl. 8.00-10.00 | Olís

Selfoss frá kl. 16.00 -18:00 | Bílasala Selfoss

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga