Við hreinsunarstörf à fyrra. Ljósm: vatnsdalsa.is
Fréttir | 12. júní 2018 - kl. 09:26
Stjórn Veiðifélags Vatnsdalsár hvetur félagsmenn til þess að líta til með ánni og fjarlægja rusl og aðra aðskotahluti, sem í eða með ánni kunna að leynast. Næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 19:30 býður veiðifélagið upp á grillmat og drykki við Fellsbúð og eru allir velunnarar Vatnsdalsár velkomnir. Veiðifélagið stóð fyrir eins átaki í fyrra og tókst það mjög vel.
Stjórn veiðifélagsins vonast til að sem flestir sjái sér fært að koma og eiga notalega kvöldstund. Í auglýsingu kemur fram að gott væri ef félagsmenn létu vita á netfangið mao@centrum.is, thora_6@hotmail.com eða í síma 864-4849 (Þóra) hversu margir eru væntanlegir í grillið frá þeirra heimili til þess að örugglega verði nægjanlega mikið lambakjöt til að grilla. Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að látið vita fyrir þriðjudagskvöldið 12 júní (í kvöld).