Fréttir | 13. júní 2018 - kl. 08:43
Smábæjarleikarnir eru um helgina

Smábæjarleikarnir í knattspyrnu fara fram á Blönduósi um helgina. Til leiks mæta knattspyrnulið yngri aldursflokka, bæði pilta og stúlkna, frá ýmsum bæjar- og sveitarfélögum af landinu. Búist er við um 400 þátttakendum og um 300 aðstandendum þeirra á leikana og því má gera ráð fyrir miklu fjöri í bænum um helgina. Knattspyrnudeild Hvatar stendur fyrir þessu vinsæla og eftirsótta knattspyrnumóti sem nú er haldið í fimmtánda sinn. Um 70-80 sjálfboðaliðar verða að störfum á mótinu. 

Setning leikanna fer fram laugardagsmorguninn 16. júní klukkan 8:15 á íþróttavellinum og hálftíma seinna hefst mótið. Kvöldskemmtun verður í íþróttahúsinu þennan dag og hefst hún klukkan 20:00. Emmsé Gauti ætlar að skemmta keppendum og öðrum gestum og eru allir velkomnir.

Helstu styrktaraðilar Smábæjarleikanna eru Arion banki, SAH Afurðir og Kjarnafæði.

Opnunartími sundlaugarinnar á Blönduósi breytist um helgina vegna Smábæjarleikanna og verður hún opin frá klukkan 8:00-20:00 laugardag og sunnudag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga