Sigurvegarar í kvennaflokki.
Sigurvegarar í kvennaflokki.
Sigurvegarar í karlaflokki.
Sigurvegarar í karlaflokki.
Mótið að hefjast.
Mótið að hefjast.
Keppni í fullum gangi.
Keppni í fullum gangi.
Fréttir | 13. júní 2018 - kl. 13:51
Mikill áhugi á Compak Sporting
Frá Skotfélaginu Markviss

Um síðustu helgi fór fram á skotsvæði Skotfélags Akureyrar Íslandsmeistaramót í haglagreininni Compak Sporting. Mótið var það fyrsta sem haldið er í þeirri grein hér á landi en Skotíþróttasamband Íslands gerðist nýverið aðili að alþjóðasambandinu Fitasc, sem Compak Sporting heyrir undir. Um er að ræða eina vinsælustu skotgrein í heiminum í dag.

Ísland virðist ekki ætla að verða nein undantekning þar á, nú þegar eru fimm skotfélög hér á landi búin að koma sér upp aðstöðu til iðkunar greinarinnar og fleiri í startholunum. Þar á meðal er Skotfélagið Markviss en áhugi félagsmanna fyrir Compak Sporting er mikill þrátt fyrir að engin aðstaða sé fyrir hendi til iðkunar enn sem komið er.

Alls voru keppendur 37 frá sjö skotfélögum sem mættu til leiks á Akureyri, þar af tveir frá Skotfélaginu Markviss en Guðmann Jónasson og Snjólaug M. Jónsdóttir tóku þátt fyrir hönd félagsins. Mótið fór fram í blíðskaparveðri og var framkvæmd þess til fyrirmyndar hjá mótshaldara.

Úrslit urðu þau að í karlaflokki sigraði Gunnar Gunnarsson SIH með 92 dúfur af 100. Annar varð Þórir Guðnason SIH eftir bráðabana með 90 dúfur og í þriðja sæti hafnaði Aron Kr. Jónsson SIH með sama stigafjölda. Í kvennaflokki sigraði Ingibjörg A. Bergþórsdóttir með 74 stig, önnur varð Helga Jóhannsdóttir með 71 stig og Snjólaug M. Jónsdóttir hafnaði í þriðja sæti með 69 stig.

Þess má til gamans geta að Ingibjörg á ættir sínar að rekja hingað á Blönduós en faðir hennar er Bergþór Þórisson (Þóris Jóhannssonar og Ingibjargar).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga