Skagastrandarhöfn
Skagastrandarhöfn
Fréttir | 14. júní 2018 - kl. 10:51
Óskað eftir tilboðum í flotbryggjur

Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í flotbryggjur. Verkið felst í útvegun og uppsetning á alls 80 m af steinsteyptum flotbryggjum með landgöngum, fingrum, botnfestum og  tilheyrandi búnaði, að því er segir á vef Skagastrandar. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember næstkomandi.

Útboðsgögn eru seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) frá og með mánudeginum og kosta þau kr. 5.000. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 26. júní næstkomandi og verða þau opnuð þar klukkan 14:15 þann dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga