Frá hátíðarkvöldverðinum Prjónagleði 2018. Ljósm: Kristín Guðmannsdóttir.

Eliza Reid, Jóhanna E. Pálmadóttir og Fullveldispeysan. Ljósm: Kristín Guðmannsdóttir.
Eliza Reid, Jóhanna E. Pálmadóttir og Fullveldispeysan. Ljósm: Kristín Guðmannsdóttir.
Fréttir | 14. júní 2018 - kl. 14:16
Prjónagleðin fékk hrós og hvatningu

Nærri 80 gestir nutu þess að borða góðan mat saman á hátíðarkvöldverði Prjónagleðinnar síðastliðið laugardagskvöld á Borginni á Hótel Blöndu. Veislustjóri var Halla Margrét Jóhannsdóttir leikari, leikstjóri og rithöfundur og fór hún á kostum er hún ræddi um prjónaskap. Rögnvaldur Valbergsson, spilaði „dinner“ músík á hljómborð og harmonikku. Eliza Reid forsetafrú heiðraði Prjónagleðina með þátttöku sinni, heimsótti hún áhugaverða staði og afhenti að lokum verðlaun fyrir Fullveldispeysuna.

Hafði hún orð á því hversu mikil gleði ríkti á Prjónagleðinni, fólk væri brosandi og nyti þess að hittast yfir sameiginlegu áhugamáli – prjóni. Hvatti hún forsvarsmenn Prjónagleðinnar til að halda áfram, því auðsjáanlega væri þetta gleðifundur.

Gunnar R. Kristjánsson, einn aðalskipuleggjandi Prjónagleðinnar, talaði um prjónaskap og prjónakennslu og hvað það væri að vera myndarlegur. Virtist það hugtak hafa mjög víða merkingu.

Daníel Hansson, framkvæmdastjóri Forystuseturs Íslands, hvatti skipuleggjendur Prjónagleðinnar til dáða og sagði frá því að hann væri nýkominn frá prjónahátíð í Svíþjóð. Hún hefði byrjað smátt, verið í litlum skóla en nú væru námskeiðin 150 og 15 þúsund manns kæmu á hátíðina. Þakkaði hann fyrir þá miklu vinnu sem lægi að baki Prjónagleðinnar, gott skipulag og skemmtilega helgi.

Tengdar frétt:

Fullveldispeysan valin á Prjónagleði

Líf og fjör á Prjónahátíð

Prjónað af gleði í tilefni fullveldis Íslands

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga