Fréttir | 19. júní 2018 - kl. 09:26
Útboð á skólaakstri í Blönduósbæ

Blönduósbær óskar eftir tilboðum í skólaakstur skólaárin 2018-2021. Verkið felst í daglegum akstri skólabarna úr dreifbýli í skóla á Blönduósi. Útboðsgögn fást afhent á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduós frá 20. júní næstkomandi. Tilboð verða opnuð 3. júlí næstkomandi á sama stað klukkan 10:00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga