Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:19 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Maríudagar verða haldnir í níunda sinn á Hvoli í Vesturhópi um helgina. Boðið verður upp á málverkasýningu, ljósmyndasýningu og Hestamannamessu að Breiðabólstað. Maríudagar eru haldnir í minningu Maríu Hjaltadóttur frá Hvoli í boði stórfjölskyldunnar frá Hvoli. María fæddist 1. júlí 1924 í Reykjavík og ólst þar upp. Hún gerðist kaupakona að Lækjarmóti í Víðidal og kynntist þar eiginmanni sínum, Jósef Magnússyni. Saman eignuðust þau tíu börn en tvö þeirra dóu ung.
María var listhneigð en lítill tími gafst til listsköpunar fyrr en börnin uxu úr grasi. Þá fór hún að mála og kenndi myndmennt í nokkur ár við Vesturhópsskóla. María lést árið 1992, 68 ára að aldri.
Á Maríudögum verður boðið upp á málverkasýningu með verkum eftir systurdóttur Maríu, Ástu Björgu Björnsdóttur og ljósmyndasýningu á myndum Andrésar Þórarinssonar, eiginmanns Ástu. Ljósmyndirnar eru teknar á þessu ári í héraðinu og má þar líta mörg kunnugleg andlit.
Á sunnudeginum verður haldin Hestamannamessa að Breiðabólstað, sem er næsti bær við Hvol. Þá fara hestamenn ríðandi frá Hvoli, aðrir fara keyrandi og enn aðrir gangandi til messu og til baka að Hvoli þar sem drukkið verður messukaffi. Kaffið er í boði stórfjölskyldunnar frá Hvoli og sóknarnefndar.
Maríudagar eru á Facebook: https://www.facebook.com/events/251783248891912/
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |