Tilkynningar | 04. júlí 2018 - kl. 11:51
TM umboðið í A-Hún. opnar á nýjum stað
Mánudaginn 11. júní opnaði TM umboðsskrifstofu að Þverbraut 1, Blönduósi og verður skrifstofan opin frá kl. 10:00 til 13:00 alla virka daga. Nýr umboðsmaður er Erla Ísafold Sigurðardóttir og starfsmaður umboðsins verður Hans Vilberg Guðmundsson.
 
Jóni Sigurðssyni er sérstaklega þakkað fyrir vel unnin störf og ánægjulegt samstarf á liðnum árum.
Símanúmer skrifstofunnar er 452 4222 og netfang hansvg@tm.is. Við bjóðum alla velkomna á skrifstofuna til þess að ræða málin og fá ráðgjöf um sínar tryggingar. 
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga