Frá Húnavöllum.
Frá Húnavöllum.
Fréttir | 06. júlí 2018 - kl. 11:50
Sláturleyfishafar borgi ásættanlegt afurðaverð

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á sláturleyfishafa að borga ásættanlegt afurðaverð til sauðfjárbænda nú í haust. Í ályktun sem sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 4. júlí síðastliðinn segir að lágt afurðaverð muni koma mjög illa niður á sauðfjárbændum í sveitarfélaginu. Í Húnavatnshreppi sé stór hluti íbúa sem byggir afkomu sína af sauðfjárbúskap.

Í ályktuninni segir:

„Ljóst er að lágt afurðarverð er í raun skerðing á rekstrarafkomu sauðfjárbænda og óvíst hversu mörg bú koma til með að standa undir því þar sem þolmörkum hefur þegar verið náð.

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps, skorar á stjórnvöld, að finna leiðir til að styrkja hinar dreifðu byggðir landsins, svo sem með niðurgreiðslu á flutningskostnaði á ull og sláturfé. Með því móti er komið á móts við þann mikla kostnað sem sláturleyfishafar og aðrir úrvinnsluaðilar sauðfjárafurða, bera vegna flutninga og sá sparnaður myndi skjóta fastari stoðum undir rekstur afurðastöðva.

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps telur að tækifæri felist í aukinni samvinnu landbúnaðar og ferðaþjónustu sem hægt sé að nýta mun betur en gert er í dag. Leggja þarf meiri áherslu á markaðssetningu og vöruþróun innanlands fyrir þann mikla fjölda ferðamanna sem sækir Ísland heim. Tryggja þarf að bændur geti fengið slátrað á hóflegu verði, vilji þeir sjálfir afsetja sínar eigin afurðir.

Sveitarstjórn skorar á forystumenn sauðfjárbænda, slátur-leyfishafa og ráðamenn þjóðarinnar að finna framtíðarlausn á þessum alvarlega vanda sem sauðfjárræktin er í.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga