Fréttir | 11. júlí 2018 - kl. 14:50
Landsmótið hefst á morgun

Mikil íþróttaveisla hefst á Sauðárkróki á morgun og stendur fram sunnudag. Á Landsmótinu verða meira en 30 íþróttagreinar auk skemmtunar og fróðleiks. Íþróttir og hreyfing verða í aðalhlutverki á daginn og á kvöldin verður skemmtun og samvera í góðum félagsskap allsráðandi. Þátttakendur mótsins geta keppt í eða prófað fjölda íþróttagreina í bland við götu- og tónlistarveislu.

Allir 18 ára og eldri geta skráð sig, hvort sem þeir eru í íþrótta- og ungmennafélagi eða ekki. Að sjálfsögðu verður margt í boði fyrir mótsgesti yngri en 18 ára. Landsmótið er því frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Á föstudagskvöldið verður götupartí og tónlistarveisla í Aðalgötunni klukkan 19-23. Auddi og Steindi, hljómsveitin Albatross og Sverrir Bergmann ásamt gestum sjá um frábæra skemmtun. Aðgangur er ókeypis.

Á laugardagskvöldið verður mikil skemmtanaveisla. Klukkan 19:30-23:00 verður matarveisla, skemmtun og dans í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Boðið verður upp á veisluhlaðborð úr Matarkistu Skagafjarðar. Veislustjórar verða Gunnar Sandholt og María Björk Ingvadóttir. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Miðaverð 5.900 kr. eða 4.900 kr. fyrir landsmóts þátttakendur.

Seinna á laugardagskvöldinu verður svo ball ársins, en Páll Óskar kemur í íþróttahúsið og sér um fjörið. Húsið opnar á miðnætti og aldurstakmarkið er 18 ár. Miðaverð er 3.900 kr. eða 3.000 kr. fyrir þátttakendur á landsmótinu.

 Hægt er að skrá sig á landsmót og kaupa aðgang að öllum viðburðum landsmótsins á https://www.landsmot.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga