Sveitarstjórn með nýjum sveitarstjóra.
Sveitarstjórn með nýjum sveitarstjóra.
Fréttir | 13. júlí 2018 - kl. 09:18
Valdimar O Hermannsson ráðinn sveitarstjóri Blönduósbæjar

Sveitarstjórn Blönduósbæjar ákvað í gær að ráða Valdimar O Hermannsson í starf sveitarstjóra. Valdimar hefur undanfarin tvö ár starfað sjálfstætt, meðal annars sem verkefnastjóri, nú síðast fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga. Sveitarstjórn Blönduósbæjar fagnar ráðningu Valdimars og hlakkar til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem framundan eru í samstarfi við hann. Hann mun hefja störf 14. ágúst næstkomandi samkvæmt samkomulagi þar um, að því er segir í tilkynningu frá Blönduósbæ.

Valdimar er markaðsfræðingur að mennt en hefur einnig lagt stund á fjölbreytt nám, m.a. í viðskiptafræðum, stjórnun, markmiðasetningu og leiðtogaþjálfun bæði hérlendis sem og í Evrópu, Japan og USA. Valdimar er í sambúð með Vilborgu Elvu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi.

Valdimar var kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í tólf ár og sat þar í bæjarráði í sex ár. Hann hefur gengt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarstjórnarstigsins á landsvísu, m.a. sem formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, stjórnarformaður Austurbrúar ses, Náttúrustofa Austurlands, HAUST og SHÍ.   Þá situr hann í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, og þekkir því vel til stöðu sveitarfélaga á svæðinu.

Áður starfaði Valdimar meðal annars í tólf ár sem Rekstrarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og um tíma einnig sem forstöðumaður innkaupasviðs HSA en þar áður aðallega við innkaupa- og rekstrarstjórn fyrirtækja.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga