Tilkynningar | 13. júlí 2018 - kl. 10:28
Skemmdarverk
Frá Önnu Margreti Valgeirsdóttur

Ágætu Blönduósingar.

Sumrin notum við gjarnarn til að dytta að því sem þarf að laga og fegra í umhverfi okkar. Blönduósbær er þar engin undantekning. Meðal þess sem þarf að gera er að lagfæra gangstéttar, stundum af því að þær eru illa farnar en stundum af því að það þarf að koma fyrir nýjum lögnum eða öðru. Nokkuð hefur verið um slíkt nú upp á síðkastið.

Hann Stebbi minn hefur verið nokkuð mikið í slíkum verkefnum. Það sem undrar okkur hjón er að það er ekki fyrr búið að steypa og slétta en það þarf einhver að skilja eftir fótafar, fingrafar, kasta steinum út í nýja steypuna eða eitthvað annað.

Ég held að ekki hafi enn verið steypt gangstétt hér án þess að hún hafi verið skemmd. Þetta er talsvert aukavesen því það þarf að fara þó nokkrar aukaferðir til að líta eftir að ekki hafi verið unnin skemmdarverk. Nú þegar skemmdarverkin hafa verið unnin þá þarf að laga og tekur það ærinn tíma, fyrir utan að stéttin verður aldrei jafn falleg. Allt þetta veldur aukakostnaði, kostnaði sem við skattgreiðendur borgum.

Gaman væri ef það færi fram umræða í samfélaginu um þessi skemmdarverk í þeirri veiku von að þetta hætti! Það er fátt eins leiðinlegt eins og að horfa á handverkið sitt eyðilagt.

Berum virðingu fyrir eigum okkar!

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga