Fréttir | 19. júlí 2018 - kl. 09:16
Kvikmyndahátíð í Nesi listamiðstöð í dag

Nes listamiðstöðin á Skagaströnd efnir til kvikmyndahátíðar í dag. Skagstrendingar eru hvattir til að líta við í Nesi á leið heim frá vinnu og horfa á stuttmyndir eftir fyrrverandi Nes listamenn. Sjá má meðal annars nokkur kunnugleg andlit heimamanna og stuttmynd af tilurð skúlptúrs eftir Ólaf Bernódusson sem er nú í Listasafni ríkisins í Osaka í Japan.

Kvikmyndahátíðin verður í stúdiói Ness listamiðstöðvar að Fjörubraut 8 frá klukkan 17-18. Allir eru velkomnir.

Stuttmyndirnar sem sýndar verða eru:

Móðurfaðir eftir Tosca Hidalgo y Terán
Börn vatnsins & Eitt Sinn Fjall eftir Jeff Mertz
Víðáttumikið landslag – postulínssögur eftir Lea Vidakovic
Elísabet og Baltasar eftir Melody Woodnutt
Breikopp eftir Sigbjörn Bratlie
Adrift eftir Markus Schroder
Ljósið í norðri eftir Aaron Palabyab
Ólafur eftir Yu Araki

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga