Fréttir | 19. júlí 2018 - kl. 09:25
Opna Gámaþjónustumótið í golfi á Húnavöku

Húnavökumótið í golfi verður haldið á Vatnahverfisvelli við Blönduós laugardaginn 21. júlí næstkomandi. Keppt verður í punktakeppni með forgjöf og verður einn almennur flokkur. Hámarksleikforgjöf karla og kvenna er 36. Ræst verður út á öllum teigum klukkan 9:00. Nándarverðlaun í boði.

Mótsgjald kr. 4.000.-

Mótsstjórnin áskilur sé rétt til breytinga ef þurfa þykir.

Skráning á www.golf.is og í síma 864-4846 (Jóhanna). Skráningu lýkur klukkan 19:00 föstudaginn 20. júlí.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga