Hjólagarpar. Ljósm: feykir.is.
Fréttir | 26. júlí 2018 - kl. 12:25
Félagar í júdófélaginu Pardusi á Blönduósi hafa síðustu vikur safnað áheitum í þeim tilgangi að fara æfingaferð til Svíþjóðar. Í var aðaldagur söfnunarinnar en þá voru hjólaðir 15 kílómetrar og hófst ferðin á Blönduósi. Hjólað var frá Íþróttamiðstöðinni, hringur á Blönduósi og út fyrir Hjaltabakka, meðfram Laxá á Ásum frá þjóðveginum, að Svínvetningabraut og að lokum aftur til Blönduós. Ferðalagið endaði í gamla bænum.
Sagt er frá þessu á feyki.is þaðan sem meðfylgjandi mynd er fengin en þar má einnig sjá fleiri myndir frá hjólaferðinni. Þar kemur fram að fimm félagar úr Pardusi, ásamt forráðamönnum og þjálfara, ætla að taka þátt í Kyodo æfingabúðunum sem fram fara í Svíþjóð dagana 9.-12. ágúst. Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á reikning 307-13-4205, kt. 420512-1390 með skýringunni Kyodo.