Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 01. ágúst 2018 - kl. 17:12
Úthlutun styrkja úr Húnasjóði 2018

Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í gær voru lagðar fram umsóknir um styrki úr Húnasjóði 2018. Alls bárust sjö umsóknir um styrk, þarf af voru fimm sem uppfylltu skilyrði til úthlutunar. Byggðarráð samþykkti að veita fimm umsækjendum styrk úr sjóðnum. Styrkþegarnir hlutu hver um sig 100.000 krónur í styrk en þeir eru eftirtaldir:

Albert Jóhannsson, nám til Bs í viðskiptafræði.
Guðrún Lára Magnúsdóttir, nám til diploma í jákvæðri sálfræði.
Ingunn Elsa Rafnsdóttir, félagsliðanám.
Jóhannes Geir Gunnarsson, nám í búfræði.
Unnur Jóhannsdóttir, nám til Bs í búvísindumyja Ólafsdóttir, félagsliðanám.

Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur er ráku Alþýðuskólann á Hvammstanga 1913-1920. Markmið sjóðsins er að stuðla að fag- og endurmenntun íbúa sveitarfélagsins. Styrkir hafa verið veittir úr sjóðnum frá árinu 2001.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga