Ljósm: hunathing.is.
Ljósm: hunathing.is.
Fréttir | 01. ágúst 2018 - kl. 17:22
Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra

Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenninga óskar eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2018. Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilegra sveitarbæja og atvinnulóða. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga sem skilið ættu viðurkenningu.

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið;  umhverfisstjori@hunathing.is eða með því að hringja á skrifstofu Húnaþings í síma 455-2400, fyrir 12. ágúst næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga