Fréttir | 04. ágúst 2018 - kl. 04:01
Pönkað á Laugarbakka

Norðanpaunk, árlegt ættarmót pönkara fer fram á Laugarbakka um verslunarmannahelgina í fimmta sinn. Uppselt er á mótið. Það er félag áhugamanna um íslenska jaðartónlist sem heldur Norðanpaunk og fá meðlimir einir aðgang. Alls koma yfir 40 hljómsveitir fram, bæði íslenskar og erlendar, m.a. Vonlaus, Hekla, Grafir, Dead Herring, Skoffín og Holdgervlar.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.facebook.com/nordanpaunk eða á www.nordanpaunk.org.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga