Fréttir | 08. ágúst 2018 - kl. 16:20
Innritun er hafin í tónlistarskólann
Frá Tónlistarskóla A-Hún.
Innritun er hafin fyrir næsta skólaár í Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga. Umsóknum skal skila rafrænt á síðu tónlistarskólans http://www.tonhun.is undir flipanum umsóknir. Opið er fyrir umsóknir til 26. ágúst næstkomandi. Þeir sem gengu frá umsókn í vor þurfa ekki að sækja aftur um. Nánari upplýsingar í síma 868-4925.
 
Skólastjóri.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga