Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 09. ágúst 2018 - kl. 10:08
Skagaströnd auglýsir eftir sveitarstjóra

Sveitarfélagið Skagaströnd hefur að nýju auglýst stöðu sveitarstjóra en hann hefur umsjón með daglegum rekstri sveitarfélagsins og ber ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar. Hann hefur yfirumsjón með fjármálum, bókhaldi og áætlanagerð jafnframt því að hafa yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins, sem og starfsmannamálum. Umsóknarfrestur um stöðuna er til og með 27. ágúst næstkomandi og verður gengið frá ráðningu fljótlega, að því er segir í auglýsingu.

Sveitarstjóri starfar námið með sveitarstjórn, hann annast samskipti og upplýsingamiðlun við samstarfsaðila auk þess að annast undirbúning og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar. Starfið er afar fjölbreytt en sveitarstjóri er jafnframt hafnarstjóri Skagastrandarhafnar og er að auki framkvæmdastjóri Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Leitað er að sjálfstæðum einstaklingi með leiðtogahæfileika og frumkvæði til framkvæmda auk hæfni í mannlegum samskiptum.

Hæfniskröfur eru:

  • Menntun, sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri og stjórnun
  • Þekking og reynsla á sviði fjármála
  • Þekking á sveitarstjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
  • Gott almennt talnalæsi og meðferð talna
  • Kunnátta á notkun helstu tölvukerfa.

Guðný Harðardóttir hjá STRÁ veitir nánari upplýsingar um starfið í síma 588-3031 frá klukkan 13-15 alla virka daga meðan á umsóknarferlinu stendur. Áhugasamir geta sent eigin starfsferilskrár og meðfylgjandi gögn til stra@stra.is. Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi hringi eða sendi rafpóst með tilkynningu um þátttöku.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga