Fréttir | 06. september 2018 - kl. 12:18
Stóðsmölun og réttir í Skrapatungurétt

Helgina 14.-16. september næstkomandi fer fram stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt. Líkt og síðustu ár eru allir hjartanlega velkomnir en helgin er svo sannarlega stórhátíð heimamanna þar sem reiðmenn og aðrir gestir skemmta sér eins og þeim einum er lagið. Fjallkóngur er enginn annar en Skarphéðinn Einarsson kórstjóri karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps með meiru og mun hann sjá um fararstjórn og leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni.

Þeir gestir sem hafa áhuga á að slást í för með gangnamönnum á Laxárdal hafa þann kostinn á að leigja hesta hjá heimamönnum eða mæta með sína eigin en gjaldfrjáls nátthagi verður fyrir hross á Strjúgsstöðum (norðan afleggjara við veginn). Fyrir þá sem kjósa að taka ekki þátt í reiðinni sjálfri er bent á að Kirkjuskarðsrétt er í 40 mínútna akstursfjarlægð frá Blönduósi og Skrapatungurétt í aðeins um 15 mínútna akstursfjarlægð.

Ef spurningar vakna er áhugasömum velkomið að hafa samband!

Facebook síða viðburðarins https://www.facebook.com/skrapatungurett/

Dagskrá helgarinnar 14.-16. september nk.:

Föstudagurinn 14.september

19:30 Súpukvöld í Félagsheimilinu á Blönduósi https://www.facebook.com/events/252657705579494/

Laugardagurinn 15.september

9:30 Lagt af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal
9:30 Lagt af stað frá Gautsdal
12:00 Áning í Kirkjuskarði. Kjötsúpa og fleiri veitingar til sölu (ath. enginn posi)
14:00 Riðið af stað frá Kirkjuskarði
16:30 Áætlaður komutími í Skrapatungurétt
23:00 Stóðrétta-dansleikur. Hvannadalsbræður í Félagsheimilinu á Blönduósi https://www.facebook.com/events/1120022868151332/

Sunnudagurinn 16.september

11:00 Stóðréttir í Skrapatungurétt.
Veitingasala í réttarskúr á meðan réttarstörfum stendur

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga