Skjáskot af N4
Skjáskot af N4
Fréttir | 12. september 2018 - kl. 12:06
Rótgróið Húnaprent á Hvammstanga

Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 heimsótti nýverið Húnaprent á Hvammstanga. Fyrirtækið er rótgróið og leggur áherslu á að veita alhliða prentþjónustu en það er ekki sjálfgefið á tímum stafrænnar tækni. Jón Haukdal er eigandi Húnaprents og hefur hann rekið fyrirtækið í nærri tvo áratugi. Jón segir í samtali við N4 að hann hafi ekki gert ráð fyrir að fyrirtækið yrði svona lengi í rekstri en það sé heimamönnum að þakka.

Viðtalið við Jón á N4 má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga