Ari Jóhann Sigurðsson. Ljósm: hnv.is.
Ari Jóhann Sigurðsson. Ljósm: hnv.is.
Fréttir | 12. september 2018 - kl. 14:20
Nýr formaður Heilbrigðisnefndar NV

Ari Jóhann Sigurðsson er nýr formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra en hann var kosinn í embættið á fundi nefndarinnar í gær. Ari Jóhann er búsettur í Varmahlíð en starfar sem forstöðumaður á Blönduósi. Auk hans sitja í nefndinni Ína Ársælsdóttir varaformaður, Lee Ann Maginnis frá Blönduósi, Margrét Eva Ásgeirsdóttir úr Skagafirði, Konráð Karl Baldvinsson úr Fjallabyggð og Guðný Kristjánsdóttir sem er fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.

Starfssvæði nefndarinnar er víðfeðmt, en það nær frá og með Fjallabyggð í austri og vestur til Borðeyrar og síðan alla leið suður á Hveravelli. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er Sigurjón Þórðarson.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga