Húsfrúin | 14. september 2018 - kl. 11:35
Samfélagsmiðlar eru mikilvægir fyrirtækjum

Flest öllum notum við samfélagsmiðla eins og Facebook en þeir hjálpa okkur m.a. að vera í góðu sambandi við vini, ættingja, félagasamtök og fyrirtæki. Samfélagsmiðlar verða sífellt mikilvægari þáttur í að viðhalda góðu sambandi milli fyrirtækja og neytenda. Samfélagsmiðlar hafa látið mikið til sín taka á stuttum tíma og má búast við að vægi þeirra og áhrif verði mun áþreifanlegri í framtíðinni.

Almennt gerir fólk ráð fyrir að fyrirtæki séu á samfélagsmiðlum en alltof oft eru þau þar án skýrs tilgangs sem birtist m.a. í lítilli tíðni skilaboða og upplýsinga.

Tilgangurinn með viðveru á samfélagsmiðlum hefur yfirleitt verið sá að vera í sambandi við viðskiptavini enda einföld leið til að eiga samskipti. Í dag nota fyrirtæki samfélagsmiðla til þess að taka þátt í viðræðum við viðskiptavini sína. Við, neytendur, biðjum um einföld og bein samskipti og búumst við því að fyrirtæki svari því. Mikill fjöldi notenda er stór hluti af mögulegum nýjum viðskiptavinum og á margan hátt eru þessi samskipti veigamikill hluti í að öðlast traust þeirra.

Afleiðingar þess að vera fjarverandi eða óvirkur á samfélagsmiðlum er að fyrirtæki eiga í hættu að verða umdeild eða að fólk haldi að þau séu að fela eitthvað.

Viðveran felur hins vegar í sér meiri áhættu þar sem fyrirtækið býður upp á opna rás þar sem gagnrýni óánægðra neytenda fær hljómgrunn. Ranglæti, falsfréttir og neikvæð umræða er fljót að breiðast út sem getur haft verulegar afleiðingar fyrir fyrirtækin.

Notkun samfélagsmiðla er mikilvæg leið fyrir fyrirtæki til að eiga samskipti en markmiðin þurfa að vera til staðar, bæði fyrir stór og lítil fyrirtæki. Fyrirtæki þurfa í meira mæli að vera meðvituð um það sem þau gera og segja og vera samhæfð. Í besta falli geta fyrirtæki fengið mjög jákvæða útbreiðslu á samfélagsmiðlum.

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga